Veiðireglur. Í ánni eru leyfðar 4 stangir á 4 svæðum , svæði 1-4 Um hverja stöng mega vera 2 veiðimenn og skulu þeir þá vera saman á veiðistað. Ef veiðimenn eru staðnir að því að nota fleiri
stangir en leyfilegt er, mega þeir búast við því að vera vísað úr ánni þann
daginn. Leyfilegt agn er fluga og maðkur.
Veiðitími. Í sumar verður veiðitími sem hér segir:
Frá 1.júlí og til 20.ágúst verður veitt frá 07-13 og 16-22
Frá 21.ágúst og til 20. sept. verður veitt frá 07-13 og 15-21
Frá 21. sept. verður veitt frá 07-13 og 14 -20
Til sérstakrar athugunar fyrir veiðimenn.
Skráið afla áður en haldið er heim.
Akið ekki utan vega og lokið hliðum.
Veiðifélagið ber ekki ábyrgð v/tjóns sem búsmali veldur á ökutækjum.
Meðferð skotvopna er bönnuð við ána og einnig er óheimilt að tjalda við ána án leyfis landeigenda.
Öll skráning á afla er í veiðiþjónustuhúsi Veiðifélagsins sem staðsett er við Veiðihúsin við Eystri Rangá á svæði 4. Ekið er að veiðihúsunum frá þjóðvegi 1 um km fyrir austan Djúpadal. Þar er alltaf heitt á könnunni og aðstaða til að ganga frá fiski og skrá í veiðibók. Einnig er þar kælir undir afla og allar upplýsingar um veiði. Þar geta veiðimenn fengið laxaplast áður en veiðar hefjast undir afla og eru þeir beðnir um að ganga frá hverjum laxi sér í poka til hægðarauka í vigtun og skráningu.
Veiðihús er staðsett á Breiðabólstað. Það blasir við hægra megin þegar komið er inn á hlaðið á Breiðabólstað. Aðstaðan saman stendur af einum aflöngum sal þar sem eru 10 kojur fyrir 20 manns, aflangt borð fyrir miðju og eldhús, salerni og sturta. Að auki er sér hjónaherbergi. Veiðimenn mega koma klukkutíma fyrir veiði nema eftir 20. sept. þá mega menn koma þegar veiði byrjar.