Affall í Landeyjum

 

Eystri Rangá

 

Þverá í Fljótshlíð

 

 

 

Upplýsingar
Saga Þverár
Veiðireglur
Veiðikort
Verðskrá
Gisting

 

Saga Þverár í Fljótshlíð

 

Fyrrum var talverð sjóbirtingsveiði í Fljótshlíðarlækjunum sem saman mynda Þverána en þá runnu vesturkvíslar Markafljóts í Þverána sem þá var jökullituð og óveiðanleg.

Við byggingu varnargarðsins við Háamúla um 1950 var megnið af vatnsmagni Þverár þá veitt í Markarfljót. Við það var eftir mjög víður farvegur sem var ekki fiskgengur nema í haustrigningum. Það var um 1995 sem 2 bændur við Þverá Markús heitinn Runólfsson í Langagerði og Jón heitinn Bjarnason í Dufþaksholti ásamt fleirum höfðu forgöngu um að þrengja að ánni með varnargörðum og gera ána þar með fiskgenga. Þetta bar þann ávöxt að 1997 veiddust fyrstu laxarnir í Þverá.

Æ síðan hefur verið þokkaleg laxveiði í Þverá flest árin á bilinu 100-200 laxar og slæðingur af sjóbirting. Veiðinni hefur verið haldið uppi með sleppingun um 20 þúsund laxagönguseiða á ári sem hefur verið sleppt 4 sleppitjarnir vítt og breitt um ána.

Sumarið 2010 tók Veiðifélag Eystri-Rangár við Þverá en Veiðifélagið hefur alið laxaseiði þau sem hefur verið sleppt í Þverá undanfarin ár. Vonast er til að aðkoma Veiðifélagsins auki laxagengd í Þverá eins og raunin hefur orðið í Affallinu í sumar. Seiðasleppingar voru stórauknar í sumar í Þverá og var sleppingin liðlega tvöfölduð úr 20 þúsund seiðum í 40 þúsund seiði.